Færsluflokkur: Bloggar

Pappakindur?

pappakindFlökkukindur vinna nú hörðum höndum að næstu sýningu á Laugaveginum. Rýmið er vonandi í höfn og er mikil prentvinna fyrir höndum.

Ég má ekki gefa allt upp strax en sýningin verður með öðru sniði að þessu sinni og samvinnan verður meiri.

Loksins tókst Flökkukindum að setja inn myndir frá síðustu sýningu sem var þann 21. mars á Laugavegi 42. Endilega kíkið á myndirnar, þar er ferlið allt frá afhendingu rýmis kvöldið áður, uppsetning verka og svo sýningin í allri sinni dýrð.

Dagsetning næstu sýningu er áætluð laugardaginn 04. apríl næstkomandi og  kemur inn nákvæm staðsetning væntanlega á morgun ef allt gengur upp.

 

Bestu kveðjur

Flökkukind

Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen 


Flökkukindur sýna í dag á Laugavegi 42

FrettabladidÞá er komið að því. Allir sem eiga leið um Laugaveginn í dag ættu að kíkja í stóra fína hornhúsið við Laugaveg 42. Sýningin er opin bara í dag, laugardaginn 21. mars frá 13 - 18.

Þeir sem ekki vita hvar Laugavegur 42 er þá verða marglita blöðrur fyrir utan rýmið.

 

Kaffi og meðlæti á staðnum. 

 

 


Flökkukindur á Laugavegi 42, laugardaginn 21. mars

Flokkukindur_IILaugardaginn 21. mars mun hópur myndlistarmanna í annað sinn setja upp sýningu í auðu verslunarrými.
Í þetta sinn verður sýningin haldin að Laugavegi 42

Opnunin er hluti af stærra verkefni.
Eins dags sýningar í rými sem stendur tímabundið autt. Sýningin unnin inn í rýmið hverju sinni.  Sett er upp á laugardegi. Opnun sýningar frá 13:00 – 18:00


Verkefnið er ætlað til að fylla upp í holur sem hafa myndast nú þegar í miðbæ Reykjavíkur. Sýningarnar eru unnar sem ferli þar sem sýningin fer eftir listamönnum sem taka þátt, stærð og gerð rýmis sem notast er við hverju sinni og samvinnu innan hópsins. Verkefnið á að skapa ákveðið fyrirvaralaust tilraunakennt andrúmsloft meðal myndlistarmanna, þar sem algjör óvissa er með hvaða rými er nýtt hverju sinni og hverjir munu taka þátt. Hugmyndin er að þróa verkin eða hugmyndina á bak við verkin mep hverri sýningu sem haldin er. þannig er hægt að fylgjast með breytingum og komast aðeins inn í hugarheim myndlistarmannsins með því að sjá hvernig tíminn og hver opnun hefur áhrif á vinnsluna og verkin.

Flökkukindur1
Listamenn sem taka þátt í verkefninu hafa notað undanfarin ár eftir útskrift til að byggja upp myndlistarstefnu sína og hafa verið dugleg við að sýna, bæði á einka og samsýningum hérlendis og erlendis.
Listamenn sem taka þátt í sýningunni að þessu sinni útskrifuðust úr Listaháskóla Íslands og Myndlistaskóla Akureyrar í myndlist.
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir2

 

 

 

 

 

 

 

Kristjana Rós Guðjohnsen Flökkukindur og sýningagestir

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband